|
|
|
Á Austurdeildinni erum við með flæði í stað hefðbundins vals. Flæðið fer þannig fram að starfsfólk deildarinnar fer á ákveðin svæði t..d. suðurstofu og er þar með ákveðin verkefni t.d. könnunarleikinn, listsköpun, hreyfingu, tónlist, hlutverkaleik, einingakubba o.s.frv.
Börnin hafa frjálst val á milli svæða og finna sér verkefni við sitt hæfi. Leitast er við að takmarka ekki fjölda barna á hverju svæði. Tekið er mið af þeim verkefnum sem lögð eru fyrir og umhverfinu sem þau eru í (það komast ekki 20 börn í listasmiðjuna).
Flæðið krefst þess að stafsfólk sé hreyfanlegt og lesi í barnahópinn og umhverfi hans. Ef ekkert barn velur ákveðið verkefni þá verðursá stafsmaður að vera færanlegur og fylgja barnahópnum á þau svæði sem þau velja sér.
Í flæði styrkist sjálfsímynd barnanna, þau læra að þau geti haft áhrif á líf sitt með því að fara á ný svæði, þau læra að sýna frumkvæði, þau fá tækifæri til að vinna með sitt áhugasvið hverju sinni. Í flæði fá þau tækifæri til að vera með vinum sínum og vinna á eigin forsendum. Þau læra að þau eru hluti af hóp en séu jafnframt einstaklingar sem hafa ólíkar þarfir, skoðanir og væntingar.
|
|
Sérkennslustjóri ber ábyrgð á
sérkennslumálum í leikskólanum, hans hlutverk er að leiðbeina kennurum og
foreldrum og halda utan um þau börn sem einhverra hluta vegna þurfa
sérstuðning. Hann skipuleggur fundi
ásamt foreldrum, kennurum og sérfræðingum.
Einnig getur hann gert formlega athugun á þroska barnsins í skólanum með
viðeigandi þroskaprófum eða matstækjum.
Sú vinna er gerð með samþykki og í samvinnu við foreldra.
Ef grunur vaknar um einhver þroskafrávik hjá
barni ber kennurum barnsins að hlutast til um málið. Þetta á einnig við ef kennarar telja að
félagslegar aðstæður barns hamli að einhverju leyti þroskamöguleikum þess.
|
Könnunarleikur.
Í þessum leik er eingöngu notast við verðlausan efnivið. Tölur,rennilásar, teppabútar, pappahólkar, áldósir, tvinnakefli,fjörugrjót, plastflöskur,lyklar og rúllur eru meðal annars það sem er notað.
Mestu máli skiptir að börnin fái tækifæri til að kanna og rannsaka hlutina á sínum forsendum, vera litlir vísindamenn. Þau gera ýmsar tilraunir og prófa hvaða eiginleikum hlutirnir eru gæddir. Meðal þess sem þau átta sig á í gegn um leikinn er hvað er líkt og ólíkt, að hlutir haldi jafnvægi og óendanlegir möguleikar hlutanna. Einbeiting barnanna eflist og grunnur að því að finna lausnir er myndaður.
Hlutverk starfsmannsins er fyrst og fremst að raða upp hlutunum í byrjun leiktímans og svo að halda sig til hlés. Afskipti hans eru eins lítil og mögulegt er. Hann grípur einungis inní ef nauðsyn krefur. Reynir að tala sem minnst.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 2 |