| Velkomin í leikskólann |
|
|
|
|
Við bjóðum nýja nemendur og foreldra þeirra velkomin í nýja leikskólann þeirra. Að byrja í leikskóla er stórt skref í lífi barns og foreldra. Því er mikilvægt að aðlögun takist vel og barnið uppgötvi hið nýja umhverfi á rólegan hátt og foreldrarnir fái tækifæri til að kynnast starfsemi skólans sem og kennurum.
Heimaheimsókn er ein leið til að undirbúa barn og foreldra undir komuna í leikskólann. Leikskólastjóri og deildarstjóri þeirrar deildar sem barnið er að byrja á koma heim til barnsins í heimsókn. Foreldrum eru færðar helstu upplýsingar um leikskólann og er spjallað við barnið um leikskólann. Barninu eru færð bók með myndum sem eru úr leikskólastarfinu. Þessi leið okkar til að tryggja góða aðlögun gefist mjög vel.
|
| 10.09.2010 - 10.09.2010 Föstudagsmorgunverður |
| 17.09.2010 - 17.09.2010 Föstudagsmorgunverður |
| 20.09.2010 - 20.09.2010 Starfsdagur |
| 21.09.2010 - 21.09.2010 Umhverfisfundur |
| 24.09.2010 - 24.09.2010 Rauður dagur |