Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Spurt og svarað


Leikskólataskan Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Leikskólinn er vinnustaður barnanna.  Þess vegna er mikilvægt að þau séu í „vinnufötum", þ.e.a.s. fötum sem þola bletti eftir málningu eða útivinnu.  Mikilvægt er að fötin séu þægileg og hefti ekki hreyfingar barnanna.  Nauðsynlegt er að barnið hafi með sér aukaföt.  Foreldrar eiga að koma með þann fatnað sem barnið þarfnast í leikskólanum, leikskólinn er ekki með aukaföt á börnin.  Það er gott að yfirfara fötin og halda þeim í lagi t.d. á teygjum, smellum og rennilásum.  Fjarlægja þarf allar reimar úr fatnaði barnanna vegna slysahættu.  Vinsamlega merkið föt barnanna vel og skilmerkilega, þá eru minni líkur á að fötin glatist.

Hvert barn þarf að hafa töskunni sinni:

Til útiveru:
Pollagalli
Tvennir ullarsokkar
Tvennir til þrennir vettlingar
Snjógalli, húfa, stígvél, kuldaskór,
Þykk peysa/flíspeysa, flísbuxur

Aukaföt í körfu (tvennt af öllu)
Nærföt/samfella
Sokkabuxur
Sokkar
Peysa
Buxur
Bleiur og snuð fyrir þau sem þess þurfa.



 
 
Veikindi barna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Það er gert ráð fyrir að börnin taki þátt í öllu starfi leikskólans úti sem inni. Þess vegna getum við ekki tekið á móti veiku barni. Útiveru er ekki sleppt nema í algjörum undantekningar tilvikum, ekki er hægt að hafa börnin inni nema í 2 daga samfellt eftir veikindi. Í leikskóla er alltaf meiri hætta á smiti og útbreiðslu algengra umgangssjúkdóma.
 
Ef barn veikist og fær hita, þarf það að dvelja heima þar til það hefur verið hitalaust í 1-2 sólarhringa. Fái barn smitandi sjúkdóm verður það að dvelja heima þar til smithætta er liðin hjá. Þetta er nauðsynleg ráðstöfun til að forðast útbreiðslu sjúkdóma í leikskólanum og sjálfsögð tillitsemi við önnur börn.

Ef barn er fjarverandi vegna veikinda í mánuð er greitt hálft gjald.Foreldrum er bent á að ef um svo miklar fjarvistir er að ræða vegna veikinda þarf að skila læknisvottorði.

Veikist barnið eða slasist í leikskólanum höfum við tafarlaust samband við foreldra og bregðumst við hverju tilfelli eftir bestu vitund.

 
Afmæli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Þegar barn á afmæli er það í aðalhlutverki á deginum sínum.  Barnið býður upp á ávexti í samverustund.  Vinsamlegast ekki senda börnin með veitingar í leikskólann.


 
 
Lyfjagjöf á leikskólatíma Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Kennarar leikskólans mega ekki gefa börnunum lyf.  Ef barn þarf á lyfjum að halda, ber að haga lyfjagjöfinni þannig að lyfin séu gefin heima, en ekki í leikskólanum.  Undantekning er gerð þegar um er að ræða lyf sem eru tekin að staðaldri eða um astmalyf.
 
Slys á börnum Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Veikist barn eða slasast í leikskólanum er strax haft samband við foreldra og brugðist við hverju tilfelli eftir bestu vitund.

Ef barn þarf að leita sér læknis hvort heldur á heilsugæslustöð eða á slysadeild leggja foreldrar út fyrir þeim kostnaði.  Foreldrar koma svo með kvittun fyrir útlögðum kostnaði á leikskólann.  Að því búnu er hægt að leggja inn á reikning hjá þeim sem greiddi fyrir þjónustuna
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 2

Viðburðir

10.09.2010 - 10.09.2010
Föstudagsmorgunverður
17.09.2010 - 17.09.2010
Föstudagsmorgunverður
20.09.2010 - 20.09.2010
Starfsdagur
21.09.2010 - 21.09.2010
Umhverfisfundur
24.09.2010 - 24.09.2010
Rauður dagur

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Garðaborg | Bústaðavegi 81 | 108 Reykjavík | s: 553 9680 | Póstur | Viðburðir | Fréttir